Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
jámm
Var að koma úr einhverri voða spa stöð hérna rétt hjá. Voða fínn staður fengum nudd, boðið var upp á kaffi og ferska ávexti að vild... en það er ýmislegt við þetta spa sem var ekki allveg nógu hressandi... t.d heiti-potturinn sem danirnir héldu ekki vatni yfir.... var bara alls ekki heitur... þetta var meira svona volgur-pottur... gufurnar voru svona í slakari kanntinum og það var allt of bjart þarna inni.... en annars ágætis tilbreyting og gott að vita af þessum stað.
Nuddið sem ég fékk, átti að vera hálftíma slökunarnudd... byrjaði á bakinu á mér, sem var bara fínnt nema að slökunardiskurinn sem var í spilaranum var rispaður og konan sem var að nudda mig virtist allveg standa á sama, mér stóð ekki á sama, hvernig er hægt að slaka á þegar maður heyrir rispaðan disk... ég spyr
Svo var mér sagt að snúa mér sem og ég gerði... hún nuddaði á mér bringun og axlir... svo stóð hún við hausinn á mér og var að nudda á mér hnakkann og hálsinn... nema hvað ég ligg með lokuð augun og er að njóta nuddsins þegar einhver dropi dettur á ennið á mér..... ég þorði ekki að opna augun en hef dregið þá áliktun að hún hafi annaðhvort svitnað svona við nuddið eða þá að hún hafi einfaldlega slefað á mig....
Hvað er það, má það... það er allavega ekki málið að 50 ára kona slefi á mann þegar hún er að nudda mann.... Hún hefði allveg eins getað hrækt framan í mig og kallað mig skítuga hóru.... ég er vignir, ég er skítugur, ég ætla í langa heita sturtu.
Vignir hvísl
Afhverju að tala þegar
þú getur hvíslað....
Athugasemdir
hvíslað : vertu bara fegin að þetta var ekki rispuð Bachman Turner Overdrive vinyl plata þá hefður verið í vondum málum ... svo með slefið var hún eh að gefa þér undir fótinn með því eða??? marr spyr sig
matthias arni ingimarsson, 24.11.2006 kl. 09:43
Ég hugsa að hún hafi bara verið orðinn svona svöng að hún hafi byrjað að slefa....
Vignir Svavarsson, 24.11.2006 kl. 10:59
Kannski var hún kvefuð?? Maður spyr sig...
Rakel (IP-tala skráð) 27.11.2006 kl. 01:22
þú meinar og þetta hafi verið sultardropi...... það er engu skárra en slefið.
Vignir Svavarsson, 27.11.2006 kl. 12:18
Ég myndi líta á það sem hrós ef nuddarinn slefar yfir manni...bókstaflega.
Kv. Kattarhvíslarinn
Valur Grettisson (IP-tala skráð) 29.11.2006 kl. 11:36
Jáááááá Vignirinn er Hress Peyji.....
fer ekkert að fara að styttast í að kallinn komi heim á klakann í kaldann öl ???
Ómar Freyr (IP-tala skráð) 2.12.2006 kl. 20:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.